Nám í Evrópu
Það eru ótal möguleikar á að læra og finna ný tækifæri til náms í Evrópu. Europass getur hjálpað þér að skipuleggja nám þitt og finna rétta tækifærið til að þróa kunnáttu þína og færni.
Europass, skref til framtíðar
Europass eru ókeypis, netlæg verkfæri sem þú getur notað til að halda utan um starfs- og námsferilinn alla ævi. Europass gerir þér kleift að:
- Skráð alla þína kunnáttu, menntun, hæfi og reynslu.
- Skoðað færni þína og kunnáttu til að skilja betur þarfir þínar og hugðarefni.
- Fengið tillögur um námskeið sem gætu hentað þér.
- Útbúið og haft yfirlit yfir umsóknir og búið til sérsniðnar ferilskrár og fylgibréf fyrir mismunandi námskeið og nám.
- Geymt öll skjöl og skrár á einum, öruggum stað.
Skráðu þig og búðu til ókeypis prófíl til að kanna hvernig Europass getur hjálpað þér.
Vektu athygli á hæfni þinno með Europass
Europass býður einnig upp á önnur verkfæri sem auðvelda þér að koma kunnáttu þinni á framfæri innan ESB:
- Viðauki með háskólaskírteini veitir gagnlegar upplýsingar um háskólaprófið þitt (s.s. einkunnir, árangur, stofnunina sem veitir skírteinið) sem kemur í góðar þarfir þegar þú sækir um ný námskeið og störf.
- Viðauki með starfsmenntaskírteini veitir gagnlegar upplýsingar um starfsmenntun þína (s.s. einkunnir, árangur, stofnun) sem kemur í góðar þarfir þegar þú sækir um ný námskeið og störf.
- Með Europass starfsmenntavegabréfinu geturðu sýnt fram á reynslu og færni sem þú hefur öðlast við nám, störf eða sjálfboðavinnu erlendis.
Finndu stuðning í gegnum þjónustu ESB
Viðurkenning á hæfi þínu erlendis Viðurkenning á hæfi þínu erlendis