Sjálfboðaliðastarf er einstakt tækifæri til þess að breikka sjóndeildarhringinn, læra nýtt tungumál, hjálpa fólki og leggja sitt af mörkum. Hér er ekki bara að finna upplýsingar um sjálfboðaliðastörf úti í heimi heldur einnig um verkefni sem eru í boði á Íslandi, en það er góður kostur ef þú vilt leggja þitt af mörkum en samt vera nálægt heimahögunum. Skoðaðu möguleikana og lestu um það sem að þú þarft að vita á eftirfarandi vefsíðum.